Þrifkantur er hellurönd sem er oft lögð úr 15×30 cm hellum meðfram grasflötum upp við palla eða við hærra yfirborð en grasflötin. Hann er afar gagnlegur og mikið uppáhald þar sem hann gerir kantklippur óþarfar við sumarsláttinn. Allur grassláttur verður auðveldari þar sem sláttuvélinni er rennt eftir helluröndinni sem er lögð í sömu hæð og grasið eða ögn ofar. Með árunum vill grasið þó stundum leita yfir hellurnar og því er nauðsynlegt að kantskera meðfram hellurönd grasflatar til halda grasinu í horfinu og þrifkantinum snyrtilegum.
Greinasafn fyrir merki: Garðaskipulag
Aðkoma skiptir máli
Nauðsynlegt er að skoða samspil húss og aðkomu frá götu sjónarhorni, vilji maður að hús og garður njóti sín sem best, jafnt þeim sem leið eiga framhjá og íbúum. Skipuleggðu framgarðinn þinn svo hann nýtist þér sem best, á hann bara að vera augnayndi eða hvaða not viltu hafa af honum? Allt fer þetta auðvitað eftir stærð hans og legu. Það getur farið vel á því að nota áhugaverðan og litríkan efnivið framan við húsið.
Gerið aðalinnganginn skýran og augljósan svo aðkomufólk þurfi ekki að velta því fyrir sér hvaða inngang eigi að nota.
Efnisval er mikilvægt og hér er leitast við að hafa beinar og skýrar línur á milli ólíkra efna. Fáir, einfaldir hlutir og hver plöntur í röðum eftir tegund.
Lágmarksbreidd gönguleiðar er 1 metri. Varist stefnulausa og óþarfa boga í gönguleiðum.
Varist að planta limgerði of nálægt göngustíg, gott er að hafa lággróður næst honum þá myndast betra pláss t.d. til að sveifla örmum á gangi, bera innkaupapokana að húsi sem og stóra hluti í flutningum.
Forðist að hafa margar tegundir plantna. Myndið frekar litla hópa af færri tegundum. Varist að planta trjám af handahófi. Mikilvægt er að hugsa fyrst um staðsetningu stórra trjáa og síðan annan gróður í kring.
Heimildir og myndir: https://www.pinterest.com/pin/224405993905763441/, https://homedesignlover.com/landscape-designs
Einkagarður endurskipulagður
Hér er fjallað um breytingar á garði sem var endurhannaður með það í huga að mynda betri dvalarsvæði og meira næði. Efst sést aðkoma að húsinu þar sem aðalinngangur snéri í suður og lóðin var opin og lítið um næði. Aðalinngangurinn í húsið truflaði þannig talsvert aðal dvalarsvæði garðsins. Á miðri grasflöt voru stór tré og falleg fuglaböð úr stuðlabergi. Eftir breytingu voru bílastæði lokuð af frá garði og komið fyrir sorpgeymslu í skjólveggjum. Nú er gengið úr húsi beint út á suðurpall og þaðan út á stóra grasflöt sem nýtist vel til leikja. Komið var fyrir heitum potti með skjólveggjum fyrir aðalvindáttum sem stuðla einnig að betra næði.

Aðkoma og bílastæði en sorpgeymsla er felld inn í skjólvegg.
Stór og góður viðarpallur nýtist vel fyrir garðveislur í góðum veðrum sem og til sólbaða og viðveru.
Heitur pottur er afmarkaður með skjólveggjum til norðurs og austurs, sem skyggja þá ekki á sól en skýla fyrir helstu góðveðurs vindáttum. Efri brún pottsins nemur við efri brún viðarpallsins kringum hann. Þannig er þægilegt að sitja umhverfis pottinn ef maður vill kæla sig niður og sóla sig. Áður en hafist er handa við endurskipulagningu er gott að geta séð fyrir sér útkomuna með því að skoða þrívíddarteikningar af fyrirhuguðum breytingum. Þannig verða yfirvofandi breytingar raunverulegri og auðveldar það oft eigendum að sjá endanlega útkomu þeirra.
Einnig var skoðað hvað gaman væri að nýta áfram, eins og náttúruhellur, fuglaböð og gróður. Ákveðið var að færa reynitré og fuglaböð úr stuðlabergi sem áður voru á miðri grasflöt út að jaðar lóðar, til að fá stærri grasflöt til leikja og til að koma í veg fyrir skuggamyndun en þannig nýtist garðurinn betur. Haldið var í þann gróður sem var í góðu ástandi og fallegar náttúrulegar steinhellur sem fyrir voru í garðinum en þær fluttar og gefið nýtt hlutverk. Steinhellurnar sem voru áður í aðkomustétt afmarka nú grasflöt frá blómabeði sem auðveldar grasslátt og gefur skemmtilegan svip. Einföld form eru á pöllum og hellulögn upp við hús, nútímalegt og stílhreint eins og húsið en í kringum grasflöt eru mýkri og frjálslegri form sem umvefja garðinn og skapa skemmtilegt mótvægi og hlýleika.
Stórar aspir sem áður skýldu fyrir austan átt voru fjarlægðar þar sem þær voru orðnar allt of háar, en reynt hafði verið að lækka þær um helming til þess að halda þeim og minnka skuggamyndun en það kom ekki vel út og þoldu þær það illa. Í staðinn var settur skjólveggur í þremur flekum og gróður sitt hvoru megin. Utan við vegginn eru rifsber, sólber og mismunandi tegundir af Reynitrjám. Með tíð og tíma munu trén ná að veita meira skjól fyrir ríkjandi austanáttinni líkt og aspirnar gerðu áður en munu síður verða of há.
Eigendur hafa einnig gaman af nytjaræktun og skipulagið tekur mið af því, þannig er kryddjurtabeð nærri eldhúsinu en aðalgrænmetisræktunin fer fram í austurgarði þar sem eru gróðurhús og grænmetisreitir ásamt ávaxtatrjám.
Sparnaðarráð fyrir garðahönnun
Margar leiðir eru til að gera garðinn huggulegan á einfaldan hátt með lágum tilkostnaði.
Skipuleggðu garðinn áður en þú byrjar, hvernig viltu nota hann, hefurðu gaman af að rækta eða viltu hafa garðinn einfaldan og viðhaldslítinn
?
Hvernig garð langar þig í? Nútímalegan með beinum línum og óþarfa prjáli? eða gamaldags með rúnnuðum lífrænum línum og formum þar sem auðvelt er að blanda saman ólíkum plöntum og hlutum? Gott er að hafa í huga að garðurinn passi við húsgerðina sem í garðinum er.
Hvaða plöntur eru nú þegar í garðinum, hverjar viltu hafa áfram? Gætu sumar sómt sér betur annars staðar, þá er um að gera að vera óhræddur við að flytja þær til. Með því að endurnýta gróðurinn sem fyrir er í garðinum ertu umhverfisvænn um leið og þú sparar. Tré getur til að mynda fengið nýja ásýnd og upplyftingu með því að raða grjóti í kring eða mynda hring og pláss í kringum það svo það fái notið sín til fulls ef á það er skyggt eða að því er þrengt.
Gott er að rissa garðin upp og skilgreina hvar hlutir og plöntur eiga að vera. Gerðu lista áður en farið er af stað að kaupa, með því má spara óþarfa kaup sem nýtast ekki sem skildi. Leitaðu ráða hjá fagfólki þegar þú þarft.
Einnig er hægt að skiptast á plöntum, fjölæringum og fræjum á ákveðnum tímum hjá Garðyrkjufélagi Íslands nú eða nágrönnum og vinum. Með því móti má fjölga tegundum og fá nýjungar í garðinn.
Sparaðu með því að gera sem mest sjálfur og taktu þér tíma í verkið, það veitir líka meiri gleði 🙂
Sótt á vef: http://homedesignlover.com/landscape-designs/10-money-saving-landscaping-tips/
Listrænar trjáklippingar
Margar leiðir eru færar í trjáklippingum og hægt að móta runna og tré á ýmsa vegu. Jafnvel er hægt að mynda ólíka ásýnd og áferð með hugmyndaflugið að vopni.

Gluggi formaður í þéttu hekki, í gegnum hann er eins og horft sé á málverk. Nauðsynlegt að huga að því hvað mun sjást í gegn svo vel takist til.

Jafnvel stærð og lögun kúlunnar breytir miklu, hér loftar vel á milli runnanna svo hver kúla lág og breið nýtur sín til fulls.

Mismunandi grænir litir á mismunandi stórum kúlum og kúlurnar í mismunandi hæð gefa fletinum nýja vídd.

Fallega grænir runnar mótaðir í kúlur innan um annars konar vaxtarlag plantna, kúlu eða þúfulaga lággróðurinn myndar svo skemmtilegan grunn til móts við vatnsflötinn.

Þéttplantaðir runnar mótaðir í misstórar kúlur mynda áhugavert mótvægi við beinan kant tjarnarinnar.
Heimildir teknar af vef: https://www.pinterest.com/pin/144467100525734233/ og https://www.pinterest.com/pin/144467100525736390/ og https://www.pinterest.com/pin/347410558724993765/ og https://www.pinterest.com/pin/413416440771897870/ og https://www.pinterest.com/pin/470626229783282770/ og https://www.pinterest.com/pin/34551122113379103/ og https://www.pinterest.com/pin/329044316494445159/ og https://www.pinterest.com/pin/356488126723573230/
Fyrir og eftir breytingar
Hér er garður skipulagður með þarfir nýrra eigenda í huga. Markmiðið var að fá notalegri dvalarsvæði sem næst húsi og meira skjól. Hluti garðsins er fallegt náttúrulegt holt sem hefur fengið að halda sér. Sjaldgæf vin í borg.
Fyrir: hér sést hvernig dvalarsvæðið var í tengslum við hús og holt.


Fyrir: eldri tenging við holtið. – Eftir: núverandi tenging, grasflöt bætt við á neðri palli með leiktæki fyrir börnin.


Vesturpallur fyrir breytingu var gangstétt. Eftir: pallur er nú rúmgóður með heitum potti og góðu dvalarsvæði upp við hús.


Vesturgarður fyrir og eftir. Dvalarsvæðið var gert upp við hús. Garðurinn er nú á þremur pöllum. Efst pallur með dvalarsvæði og heitum potti, mið grasflöt með leiktæki og neðst er upprunalega holtið.


Fyrir: holtið náði næstum upp að húsi. Eftir: holtið er nú aðeins fjær þar sem komið var fyrir miðpalli með grasflöt. Vel gekk að endurnýta hleðslusteininn sem fyrir var á lóðinni. Halda áfram að lesa







































