Greinasafn fyrir merki: Aðkoma

Aðkoma og bílaplan endurnýjað

Þetta snyrtilega hús hefur fengið nýtt og snyrtilegt bílaplan með gróðri sitthvoru megin sem hæfir því vel. Þessar myndir sýna aðstæður fyrir breytingar en myndirnar hér að neðan eftir breytingar. Aðkoman er lýst upp á plöntusvæði sem aðskilur göngustíg frá bílaplani.

 „Rosalega gaman að vinna eftir teikningunum þínum“ skrifaði Perla Björk eigandi hússins Umhverfis.is í dag.

Garðinn teiknaði Umhverfis 2023.

Viðtal í garðablaði Morgunblaðsins

þann 26. maí 2023 birtist þetta viðtal í garðablaði Moggans.

Garðhús nýtt hjá hæðarmun lóðar.

Grasflöt er afmörkuð með þrifkanti. Glæsilegt útiborð „Þorparinn“ frá JAX handverk prýðir þennan fallega garð.

@jaxhandverk útihúsgögn

Lýsing við aðkomu húsa

Lýsing framan á tröppum vísar vel leiðina að aðalinngangi hússins.

Lýsing aðkomu gerir mikið fyrir húsið og garð þess þegar rökkva tekur og á Íslandi er hún nauðsynleg meiri part ársins. Með lýsingu er hægt að sýna augljóslega hvar aðalinngangurinn í húsið er.

Vel upplýst aðkoma býður gesti velkomna um leið og hún er nauðsynleg póstburðarfólkinu.

Falleg og stílhrein aðkoma undir japönskum áhrifum með einföldu gróðurvali, skýr skil á milli efna og lita.

 

 

 

 

 

 

Hér er lýsingu beint upp vegg sem varðar leiðina að aðalinngangi hússins sem passar vel við stórbrotinn stíl hússins.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lýsingu er varpað eftir gangstígnum, stórar stiklurnar koma vel út  með lágum uppreistum kösturunum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér er notast við lýsingu sem gengur fyrir sólarljósi, það getur komið sér vel þar sem erfitt er að leggja rafmagn.

Fallegar gamaldags luktir passa vel við gamaldags stíl gangstéttar og húss.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimildir: https://www.pinterest.com/pin/224405993905763441/