Mánaðarskipt færslusafn fyrir: febrúar 2013

Öðruvísi húsaklæðning.

Hver vill ekki hafa húsið sitt svona mjúkt og flaueliskennt?

Í Austurríki má finna þetta hús sem hefur verið klætt með gervigrasi í stíl við iðagræn túnin í kring. Nóg er af skotum og mishæðum, viðbótargluggar og tilgangslausar tröppur mynda ævintýralegt sögusvið.   Hönnuðirnir eru Reinhold Weichlbauer og Josef Albert Ortis hjá  Weichlbauer Architects.  Í þessu einbýlishúsi. eru sameinaðir þættir arkítektúrs og umhverfis. Halda áfram að lesa →

Nokkrar útfærslur af hellum í grasi.

Fallegt fyrir augað og minnir óneitanlega á skákborðið alkunna.

Það er hægt að gera marga skemmtilega hluti með ekki flóknara efni en grasflöt og hellum.  Hellum er komið fyrir í grasflöt og verða þær þannig partur af henni eða til að auðvelda umgengni um hana t.d. í bleytu. Einnig er hægt að láta gras vaxa á milli hellna til að mýkja áferð og útlit þeirra. Halda áfram að lesa →

Smágarðar

Unnið með smágarða

Sniðug hugmynd, þar sem gróðurbeðum má raða að vild og breyta til, aftur og aftur.  Lágvöxnum gróðri er komið fyrir í hverjum kassa, þeir eru svo á hjólum þannig að auðvelt er að færa þá til og raða upp á mismunandi vegu.  Ein tegund í einn tígullaga kassa sem svo mynda breiður af jarðlægum gróðri í ýmsum áferðum og mynstrum.  Það eru hönnuðirnir Legge Lewis og Legge sem eiga heiðurinn af þessari hugmynd en þeir starfa í New York og Austin í Texas. Þetta verk þeirra var á alþjóðlegu garðhátíðinni í Toronto í september 2010. Halda áfram að lesa →