Í Elliðaárdalnum hefur verið komið fyrir fallegum og gagnlegum fræðsluskiltum fyrir áhugafólk um fugla og ýmsar menningarminjar sem í dalnum finnast. Nýjasta skiltið er sérstaklega fyrir áhugafólk um fugla og er eitt staðsett við efstu trébrúnna fyrir neðan stíflu. Bent er á bestu staði í dalnum til að skoða fugla og fleira fræðandi er varðar fuglalíf í dalnum. Þetta er verkefni sem var valið í íbúakosningum úr innsendum hugmyndum 2012 í betri hverfi sem Reykjavíkurborg stóð fyrir. Í þetta verkefni var veitt ein milljón króna og var það sett upp í febrúar 2013.
Mörg fleiri skilti eru víðs vegar í dalnum, þau hafa þó mörg látið á sjá og spurning hvað sé best að gera til að koma í veg fyrir eyðileggingar af þessu tagi. Ljóst er að skiltin verða að vera þannig úr garði gerð að hægt sé að þrífa af þeim krot og fleira í þeim dúr, kannski er hagkvæmara að hafa glært plexigler yfir þeim sem er þá jafnvel ódýrara að skipta út ef ekki er hægt að þrífa óhreinindin burt.
Myndir úr einkasafni og sóttar á vef: http://www.flickr.com/photos/kristny/6277972254/in/photostream/ http://www.flickr.com/photos/kristny/6277846144/lightbox/ http://www.flickr.com/photos/kristny/6159561307/in/photostream/ http://www.flickr.com/photos/kristny/6160434736/in/photostream/ http://www.flickr.com/photos/kristny/6160432432/in/photostream/