Á plásslitlu svæði á Saigon í Vietnam var hannað hús handa 30 ára gömlu pari og móður þeirra. Það er einungis 4 metrar á breidd en alveg 20 metra hátt. Útveggir þess að framan og aftan eru grænir, lóðréttir garðar. Þar fyrir innan eru gluggar/hurðar svo gott sé að sinna „garðverkunum“. Innveggir eru fáir sem engir og því er útsýnið óhindrað að gróðrinum hvaðan sem er úr húsinu.
Í Vietnam er þetta góð leið til að verja íbúana fyrir steikjandi sólinni, hávaða og mengun. Hér á Íslandi mætti mögulega nýta þessa hugmynd að t.d. fallegum stigagangi í fjölbýlinu nú eða tvílyfta einbýlinu.