Það er hægt að gera marga skemmtilega hluti með ekki flóknara efni en grasflöt og hellum. Hellum er komið fyrir í grasflöt og verða þær þannig partur af henni eða til að auðvelda umgengni um hana t.d. í bleytu. Einnig er hægt að láta gras vaxa á milli hellna til að mýkja áferð og útlit þeirra.
Hægt er að láta grasið vaxa markvisst á milli hellnanna og gefa þeim þannig mýkri áferð, eins og sést hér á myndinni fyrir neðan, fúgan er þá höfð breiðari en venjulega og sáð í á milli.
Á myndinn hér að ofan til hægri hefur verið gert ekta taflborð úr hellum og grasi á víxl, þetta er greinilega gróðurmikill garður og líklega skuggsæll en hönnunin gefur honum sjarmerandi ásýnd.
Myndir sóttar á vef: http://www.designhouseideas.com/category/garden