Í Austurríki má finna þetta hús sem hefur verið klætt með gervigrasi í stíl við iðagræn túnin í kring. Nóg er af skotum og mishæðum, viðbótargluggar og tilgangslausar tröppur mynda ævintýralegt sögusvið. Hönnuðirnir eru Reinhold Weichlbauer og Josef Albert Ortis hjá Â Weichlbauer Architects. Í þessu einbýlishúsi. eru sameinaðir þættir arkítektúrs og umhverfis. Halda áfram að lesa
Greinasafn fyrir merki: Umhverfi
Umhverfislistaverk umvafið skógi
Skemmtilegt listaverk eftir Philippe Handford sem hann gerði á nýliðnu ári, má finna á skógi vöxnu svæði í Englandi. Hann nýtir efnivið á svæðinu og hugmynd kviknar. Halda áfram að lesa
Glænýr hjólastígur frá Mosfellsbæ niður í Grafarvog
Um er að ræða malbikaðan og upplýstan hjólastíg, þar sem vel hefur tekist til í samstarfi tveggja sveitarfélaga. Þetta er samgöngustígur sem tengir núverandi stígakerfi í Mosfellsbæ við stígakerfi í Reykjavík. Möguleikar hjólreiðamanna að komast beina leið milli sveitarfélaganna batna til muna og leiðin milli Reykjavíkur og Mosfellsbæjar styttist töluvert. Nýi hjóla- og göngustígurinn liggur sunnan og austan Vesturlandsvegar frá Hlíðartúnshverfi í Mosfellsbæ, gegnum skógræktarsvæði Mosfellinga við Hamrahlíð, og tengist nýju stígakerfi Reykjavíkur við Bauhaus. Halda áfram að lesa