Gott er að huga að vetrarskýlingu plantna á meðan jörð er ófrosin og auðvelt er að reka niður stoðir. Það má jafnvel bíða með að setja skýlinguna sjálfa upp þar til veður gerast vályndari svo er líka rétt að minna þá ræktendur á að vorin eru hættulegasti tími fyrir sígrænar plöntur. Þegar mikil útgufun er og sólin skín þá er mesta hættan á að sígrænu plönturnar geti orðið brúnar eða gular, nema gerðar séu ráðstafanir til að skýla þeim. Skýlinguna er svo hægt að fjarlægja í maí eða þegar öll hætta á næturfrosti er liðin hjá. Mestu skemmdirnar verða yfirleitt í febrúar fram í mars þegar birtir en frost er ekki farið úr jörðu.
Greinasafn fyrir merki: Sígrænn gróður
Vetrarfallegur gróður
Við gróðurval og skipulag er reynt að stuðla að fjölbreytileika og blómgun mismunandi árstíma til að hafa alltaf eitthvað í gangi. Þannig má hafa gaman að umhverfinu og sjá eitthvað nýtt í hvert sinn. Vetrarfallegur gróður skiptir miklu máli. Í þessum pistli er sjónum beint að nokkrum tegundum sem sóma sér líka vel yfir vetrartímann.
Flestir hugsa eflaust um hinn hefðbundnari sígræna gróður eins og greni og furu sem vetrarfallegan gróður. Jafnvel fljóta einir og sýprus með í þessari flóru, enda fjölmargar og breytilegar tegundir í þeim flokki. Halda áfram að lesa