Viltu skýla garðinum frá veginum? Það er hægt að gera á margan hátt, hér að neðan eru mismunandi útfærslur.
Greinasafn fyrir merki: Grindverk
Einkagarður endurskipulagður
Hér er fjallað um breytingar á garði sem var endurhannaður með það í huga að mynda betri dvalarsvæði og meira næði. Efst sést aðkoma að húsinu þar sem aðalinngangur snéri í suður og lóðin var opin og lítið um næði. Aðalinngangurinn í húsið truflaði þannig talsvert aðal dvalarsvæði garðsins. Á miðri grasflöt voru stór tré og falleg fuglaböð úr stuðlabergi. Eftir breytingu voru bílastæði lokuð af frá garði og komið fyrir sorpgeymslu í skjólveggjum. Nú er gengið úr húsi beint út á suðurpall og þaðan út á stóra grasflöt sem nýtist vel til leikja. Komið var fyrir heitum potti með skjólveggjum fyrir aðalvindáttum sem stuðla einnig að betra næði.
Stór og góður viðarpallur nýtist vel fyrir garðveislur í góðum veðrum sem og til sólbaða og viðveru.
Heitur pottur er afmarkaður með skjólveggjum til norðurs og austurs, sem skyggja þá ekki á sól en skýla fyrir helstu góðveðurs vindáttum. Efri brún pottsins nemur við efri brún viðarpallsins kringum hann. Þannig er þægilegt að sitja umhverfis pottinn ef maður vill kæla sig niður og sóla sig. Áður en hafist er handa við endurskipulagningu er gott að geta séð fyrir sér útkomuna með því að skoða þrívíddarteikningar af fyrirhuguðum breytingum. Þannig verða yfirvofandi breytingar raunverulegri og auðveldar það oft eigendum að sjá endanlega útkomu þeirra.
Einnig var skoðað hvað gaman væri að nýta áfram, eins og náttúruhellur, fuglaböð og gróður. Ákveðið var að færa reynitré og fuglaböð úr stuðlabergi sem áður voru á miðri grasflöt út að jaðar lóðar, til að fá stærri grasflöt til leikja og til að koma í veg fyrir skuggamyndun en þannig nýtist garðurinn betur. Haldið var í þann gróður sem var í góðu ástandi og fallegar náttúrulegar steinhellur sem fyrir voru í garðinum en þær fluttar og gefið nýtt hlutverk. Steinhellurnar sem voru áður í aðkomustétt afmarka nú grasflöt frá blómabeði sem auðveldar grasslátt og gefur skemmtilegan svip. Einföld form eru á pöllum og hellulögn upp við hús, nútímalegt og stílhreint eins og húsið en í kringum grasflöt eru mýkri og frjálslegri form sem umvefja garðinn og skapa skemmtilegt mótvægi og hlýleika.
Stórar aspir sem áður skýldu fyrir austan átt voru fjarlægðar þar sem þær voru orðnar allt of háar, en reynt hafði verið að lækka þær um helming til þess að halda þeim og minnka skuggamyndun en það kom ekki vel út og þoldu þær það illa. Í staðinn var settur skjólveggur í þremur flekum og gróður sitt hvoru megin. Utan við vegginn eru rifsber, sólber og mismunandi tegundir af Reynitrjám. Með tíð og tíma munu trén ná að veita meira skjól fyrir ríkjandi austanáttinni líkt og aspirnar gerðu áður en munu síður verða of há.
Eigendur hafa einnig gaman af nytjaræktun og skipulagið tekur mið af því, þannig er kryddjurtabeð nærri eldhúsinu en aðalgrænmetisræktunin fer fram í austurgarði þar sem eru gróðurhús og grænmetisreitir ásamt ávaxtatrjám.
Skjólveggir af ýmsum gerðum.
Mikilvægt er að hafa í huga þegar valin er tegund skjólveggjar að hún tengist vel stíl hússins. Við nútímalegt hús lítur gamaldags, krúttlegur skjólveggur út fyrir að vera á röngum stað. Þá passar betur að hafa vegginn sem einfaldastan, beint og ferkantað fer oftast betur við nútímalegt „funkis“ hús. Það sama á við gamaldags timburhús þar þarf að velja skjólvegg sem klæðir húsið vel og virkar sem hluti af því. Þá er um að gera að hafa mynstur, boga, fláa og breytileika í veggnum til að ná fram notalegheitum sem passa við húsið.
Gott er að hafa í huga að draga úr stærð eða umfangi veggsins með gróðri, hafa útskot og beygjur til að koma gróðri betur fyrir því við viljum síður að skjólveggurinn líti út eins og virki í kringum húsið. Halda áfram að lesa
Fyrir og eftir breytingar
Hér er garður skipulagður með þarfir nýrra eigenda í huga. Markmiðið var að fá notalegri dvalarsvæði sem næst húsi og meira skjól. Hluti garðsins er fallegt náttúrulegt holt sem hefur fengið að halda sér. Sjaldgæf vin í borg.
Fyrir: hér sést hvernig dvalarsvæðið var í tengslum við hús og holt.
Fyrir: eldri tenging við holtið. – Eftir: núverandi tenging, grasflöt bætt við á neðri palli með leiktæki fyrir börnin.
Vesturpallur fyrir breytingu var gangstétt. Eftir: pallur er nú rúmgóður með heitum potti og góðu dvalarsvæði upp við hús.
Vesturgarður fyrir og eftir. Dvalarsvæðið var gert upp við hús. Garðurinn er nú á þremur pöllum. Efst pallur með dvalarsvæði og heitum potti, mið grasflöt með leiktæki og neðst er upprunalega holtið.
Fyrir: holtið náði næstum upp að húsi. Eftir: holtið er nú aðeins fjær þar sem komið var fyrir miðpalli með grasflöt. Vel gekk að endurnýta hleðslusteininn sem fyrir var á lóðinni. Halda áfram að lesa