Nú er mesta skammdegi ársins og þá er lýsing okkur afar hugleikin, jafnt innandyra sem utan.
Í fallegum garði má skapa nýjar víddir og áhrif utandyra með fallegri lýsingu. Njóta má garðsins jafnt innan úr húsi sem og auka ánægju vegfarandans á ferð sinni um hverfið á dimmum árstíma eða að kvöldi til.
Gott er að spyrja sig hvar viðbótarlýsing getur verið gagnleg í myrkri. Þá er hægt að íhuga hvernig má lýsa upp þau svæði ásamt því að draga athyglina að uppáhalds svæðum garðsins eða uppáhalds plöntum eða trjám.
Áhrif lýsingar:
Baða með lýsingu
Með því að koma lýsingu fyrir við jaðar veggs, skjólveggs/girðingar eða limgerðis og beina ljósinu meðfram þeim baðast yfirborðið af fallegri mjúkri birtu. Sömu áhrifum má ná með því að lyfta lýsingunni aðeins upp og beina niður á ská eftir t.d. timburpallinum.
Skuggamyndun
Þegar ljósi er varpað framan á hlut eða tré getur myndast áhrifaríkur skuggi. Hann er svo hægt að auka ef vill eftir því í hvaða hæð ljósið er stillt.
Lýsa niður
er gagnlegt til að velja út sérstaka plöntu eða smá hlut eins og fuglabað. Einnig til að vekja athygli á gönguleið eða til að vara sig á hæðarmismun.
Göngulýsing
Hugmyndin að þessari lýsingu er að laða eða vekja áhuga á því sem er framundan. Einnig skapar þessi lýsing aukið öryggi.
Tunglskyn
Rómantísk lýsing sem næst með því að koma ljósi fyrir t.d. í trjákrónu. Þá brotna ljósgeislarnir upp og dreifast um svæðið.
Vatnslýsing
með lýsingu ofan í vatni má ná fram fallegum áhrifum. Vatn á hreyfingu er sérstaklega aðlaðandi þar sem hver bylgja magnast með lýsingunni. Sama má segja um að lýsa upp gosbrunn eða foss.
Gott er að hafa í huga að minna er meira!
þegar kemur að lýsingu í garðinn.
Auka má sýnileika landslags sem er síður sýnilegt að degi til. Skuggar eru mikilvægir og því má ekki yfirlýsa heldur halda í dulúðina og varast of skær ljós, því þá getur garðurinn virkað óeðlilegur.
Vetrarlýsing