Oft er hægt að hlæja að sumum smávægilegum mistökum í umhverfisframkvæmdum en önnur getur verið dýrt að lifa með og lagfæra og munu jafnvel angra íbúa um ókomin ár. Hér sjást nokkur ótrúleg dæmi.
Í Xi’an, Shaanxi Province í Kína var „óvart“ bætt við einni húsablokk þar sem skipulagt var að leggja 8 akreina hraðbraut. Vegna þess hversu dýrt hefði verið að færa íbúa blokkarinnar var ákveðið að lifa með þessum mistökum!
Svefnloft með bílskúr hefur eflaust litið betur út á blaði en í framkvæmd. Þó það sé nauðsynlegt að hafa góðan vatnshalla frá húsi er þetta fullmikið 😉
Í heitum löndum getur komið sér vel að leggja bílnum í skugga en hér er nú líklega full langt seilst. Það er lágmark að komast í stæðið.
Við stígalagningu hefði maður haldið að hugsað væri fyrir því að hann leiði mann á ákveðinn leiðarenda.
Svo þarf líka að hugsa fram í tímann á meðan á framkvæmd stendur. Heldur vont þegar maður hefur málað sig út í horn. Hér eru þeir nýbúnir að koma þessum fínu staurum fyrir og ég vona svo sannarlega, þeirra vegna, að einn þeirra sé hreyfanlegur.